Saturday, September 09, 2006

Sloggi

Keypti mér magnpakningu af Sloggi brókum í vikunni. Djöfull er þægilegt að vera í svo stórum naríum að þær ná alveg upp að brjóstum. Skil ekkert í þessum g-strengjum. Strengir eiga að vera í hljóðfærum en ekki upp í rasskorum.

5 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Kristín þó! Sloggí? ég mundi nú fara að huga að huggulegri undirfatnaði, einhverju með blúndum og dúlleríi...

mín ráð hljóta að svínvirka þar sem ég er fráskilin og karlmannslaus (og þeir karlmenn sem ég hef kynnst eftir skilnað eru svín;)

3:46 pm  
Blogger Kristin Bjorg said...

Ég er eins manns kona og Gulli er sjúkur í Sloggí. Hann hefur meira að segja einu sinni gengið í slíkum. Sumarið´89 vorum við í bústað og fórum í sund á Laugarvatni. Gulli hafði gleymt hreinum naríum en ég var með extra og hann fór í einar eftir sundið. NB! í kallaklefanum. Á þeirri stundu sannfærðist ég endanlega um að hann væri sannur karlmaður.

10:33 pm  
Blogger Anna Kristjánsdóttir said...

Hvað ég er sammála þér um óþægilegar nærur uppi í rassborunni. Ég hefi einu sinni notað eitthvað sem var í líkingu við G-streng og fannst sem ég væri búin að gera stykkin mín allan tímann sem ég var í þeim, í heilan klukkutíma. Þá gafst ég upp og skipti og síðan eru liðin mörg ár.

1:09 am  
Anonymous Anonymous said...

Gulli í Sloggís, tíhí:D

11:00 am  
Blogger Ester Elíasdóttir said...

Má ég vera mitt á milli? Ekki Sloggi nema í neyð (eins og Gulli) og ekki g-strengur nema þegar ég fer í hvítu, þröngu, flottu buxurnar mínar. Annars bara bómullar mjaðmaföðmur (hip huggers),helst frá M&S, Victoria Secret's eða GAP. Ætla að birgja mig upp í Flórída í nóvember.

P.S. M&S er ekkert vont eða dónalegt, heldur Marks&Spencer

6:11 pm  

Post a Comment

<< Home