Friday, August 18, 2006

A búú

Liðið vaska tíndi rétt tæp sex kíló á nó tæmi. Nú er bara að sjóða og setja í gas og síðan á morgun fer sykurinn samanvið og allt í krukkur. Ég nota uppskrift frá mömmu Systu - klikkar aldrei. Ég hef reyndar aðeins minnkað sykurinn og það hefur ekki komið að sök. Systa - ég sendi Gulla með krukku til þín í vinnuna....

4 Comments:

Blogger Helga said...

Á hvaða plánetu ert þú? Mitt er ýmist grænt eða fölbleikt ennþá. Ekki segja að þetta sé munurinn á austur- og vesturbænum.

4:21 pm  
Blogger Kristin Bjorg said...

Ja mín kæra - svona er Vogahverfið, logn og blíða. Ég fékk gas í Lyf og heilsu í Glæsibæ og ætla að fara að fíra undir. Það er náttúrulega slatti af grænu en það er líka nauðsynlegt

7:12 pm  
Blogger Hildigunnur said...

mitt er líka orðið hlauphæft, spurning um að hinkra fram á sunnudag, menningar(nótt)dagur of mikilvæg hér í miðbænum til að eyða í tínslu.

10:58 pm  
Anonymous Anonymous said...

kærar þakkir,hlakka til að smakka, S.

2:50 pm  

Post a Comment

<< Home