Friday, January 27, 2006

Ég slapp

lifandi frá leiknum í gær. Ég verð svo gríðarlega spennt yfir landsleikjum í handbolta að ég finn til. Ég tók það til bragðs í gær að gera það sem mér finnst leiðinlegast þ.e. að strauja meðan ég horfði á leikinn. Fékk mér svo bjór - straujaði meira - annar bjór. Nú er það spurning hvernig ég kemst í gegnum leikinn í kvöld. Eða hvernig dæturnar komast í gegnum þetta. Þær fá áfall eftir áfall þegar ég tryllist yfir mörkunum. Um manninn þarf ekki að tala - hann horfir á þetta á launum.

1 Comments:

Blogger Hildigunnur said...

ég sárhneykslaðist á látunum í mínum kalli í gær, yfir meintum dómaramistökum...

6:11 pm  

Post a Comment

<< Home