Thursday, December 16, 2004

Hljóðfæraval

Bryndís 9 ára byrjaði að læra á saxafón í Tónskóla Sigursveins í haust - alsæl með sitt val. Á þriðjudag voru jólatónleikar þar sem fram komu þeir sem eru í yngir deild skólans og eru að læra á gítar og saxafón. Þarna komu fram nítján börn og yngri unglingar og þá brá svo við að af þessum 19 lék ein stelpa, frænka hildigunnarr.blogspot.com, á gítar og svo mín á saxinn.
Þær voru þarna í góðum félagsskap gelgjulegra unglingspilta, en ég spyr læra allar stelpur á fiðlu eða píanó? Mín er víst sú eina í skólanum á sax, en einhverjar stelpur eru í eldri deildinni á gítar.

4 Comments:

Blogger Uppglenningur said...

Líst vel á þetta. Hún endar kannski í djassinum, þar er einmitt skortur á kvenkynssaxafónleikurum. Mikið ertu annars heppin að hún skuli ekki hafa valið fiðlu, að ekki sé talað um helv. harmonikku.

11:53 am  
Blogger Hildigunnur said...

Fífa er reyndar á fiðlu, en Freyja á selló. (Finnur á víólu, en þú varst víst bara að spyrja um stelpur) Hvaða frænka mín er á gítar? Klara? Varla Ásta Sigríður! Man bara eftir því í augnablikinu að Viktoría er að læra á hörpu. Hlýtur að vera hellingur af flautustelpum líka, kannski klarinett og vonandi einhverjar í brassinu og slagverkinu.

7:42 am  
Anonymous Anonymous said...

Klara held ég hún heiti - dóttir Sigurðar Halldórssonar

ég sjálf

10:10 am  
Blogger Hildigunnur said...

já, það hlaut eiginlega að vera. Maður alveg hættur að fylgjast með!

1:17 pm  

Post a Comment

<< Home